Skil á vörum: Kaupandi hefur 30 daga frá móttöku vöru til að skila vörunni að því tilskildu að hann hafi ekki notað vöruna og að henni sé skilað í upprunalegu ástandi og sé í upprunalegum umbúðum (gildir ekki um vöru sem keypt er á útsölu). Endurgreiðsla er framkvæmd að fullu ef ofangreind skilyrði eru uppfyllt og eftir að seljandi hefur móttekið vöruna. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd. Kvittun fyrir vörukaupunum þarf að fylgja með til þess að geta fengið endurgreiðslu.

Skipti á vörum: Hægt er að skipta vörunni í aðra vöru eða fá inneignarnótu. Skila verður vöru innan 30 daga eftir að vara er keypt. Varan verður að vera ónotuð og í upprunalegum umbúðum.

Sé varan send til okkar er kostnaður á ábyrgð sendanda. Kostnaður við að skila vörunni greiðist af kaupanda og hægt er að skila í gegnum Dropp hér.

Útsöluvörum fæst ekki skipt né skilað. Það er hægt að skipta um stærð eða í aðra útsöluvöru eins og birgðastaða leyfir.


Vinsamlegast hafið samband við okkur í síma: 543-1315 eða sendið okkur tölvupóst á verslun@heimavollurinn.is ef spurningar vakna.