Sendingar og skil
Pantanir
Senda pöntun
Við afgreiðum allar pantanir hratt og örugglega.
-
Afgreiðslutími: Venjulega er pakkað og sent næsta virka dag. Ef álag er mikið getur tekið 1–3 virka daga að koma pöntunum til Dropp
-
Flutningsaðili: Heimavöllurinn tekur sér 0–2 virka daga að koma vörunni til Dropp, sem flytur hana áfram á umbeðinn afhendingarstað.
-
Tilkynningar: Þú færð tilkynningu um leið og pöntunin þín er komin til Dropp. Þar færðu einnig sendingarnúmer til að fylgjast með stöðu sendingarinnar.
-
Sendingarkostnaður: Reiknast við kaup og fer eftir stærð og þyngd sendingar. Ókeypis sending fylgir pöntunum yfir 12.000 kr.
Sækja pöntun - FRÍTT
Til að koma til móts við þau sem vilja losna við sendingarkostnað á meðan við höfum ekki opnað nýja verslun, höfum við gert samning við 1104 by Mar í Ármúla 15 sem sér um afhendingu pantana fyrir okkur.
- 📍 Afhendingarstaður: 1104 by Mar, Ármúli 15
- 📲 Þú færð SMS-staðfestingu þegar pöntunin er tilbúin hjá 1104 by Mar í Ármúla.
- ⏱ Pöntun er aðeins hægt að sækja eftir að SMS hefur borist.
- ⚠️ Athugaðu: Það er ekki hægt að versla hjá Heimavellinum í Ármúla 15 – aðeins að sækja pantanir á meðan við erum í flutningum
Skil og skipti
Það skiptir okkur miklu máli að þú sért ánægð/ur með vöruna þína. Til þess er leikurinn gerður!
-
Skilafrestur: 14 dagar frá móttöku.
-
Ástand vara: Varan þarf að vera ónotuð, í upprunalegum umbúðum og með miðanum á.
-
Endurgreiðslur: Endurgreiðsla fer fram þegar varan hefur borist aftur til okkar og verið samþykkt.
-
Útsöluvörur: Ekki er hægt að skila útsöluvörum. Hins vegar er hægt að skipta í aðra stærð af sömu vöru (ef til er á lager) eða skipta yfir aðra útsöluvöru.
Auðvelt að skila og skipta í netverslun
Skref 1:
Sendu tölvupóst á verslun@heimavollurinn.is með pöntunarnúmeri.
-
Ef þú vilt skipta: segðu hvaða vöru/stærð þú vilt fá svo við getum tekið hana frá.
-
Ef þú vilt skila: láttu vita hvaða vöru þú ætlar að skila.
Skref 2:
- Senda með Dropp: Það er auðvelt að nota Dropp. Þar fylliru út upplýsingarnar og velur hvort þú viljir skila eða skipta.
-
Mæta í Ármúla: Hægt er að mæta með vöruna í Ármúla eingöngu eftir að þú hefur sent tölvupóst og hefur fengið staðfestingu á að ný vara sé tilbúin.
Mikilvægt: Starfsfólk 1104 by Mar getur ekki afgreitt nýjar pantanir/stærðir án staðfestingar frá okkur.
Athugið: Dropp sækir pakka utan höfuðborgarsvæðisins oftast 1x í viku, sem getur lengt afhendingartíma í 10–14 daga.
📧 Hafa samband: verslun@heimavollurinn.is