Sagan

Hvaðan kemur hugmyndin?

Hugmyndin kviknaði út á sparkvelli sumarið 2020, nokkrum vikum eftir að Sara Björk Gunnarsdóttir hafði orðið Evrópumeistari með Lyon. Ef litið var til fjölda fótboltakrakka í treyjum merktum leikmönnum á sparkvöllum landsins samhliða stórkostlegs árangur Söru Bjarkar og annarra íslenskra knattspyrnukvenna, þá var eitthvað sem okkur fannst vanta.

Engin #dóttir

Allar fótboltatreyjur voru merktar með nafni knattspyrnumanna. Við sáum hvergi fótboltakrakka í fótboltatreyjum merktum Gunnarsdóttir og við sáum enga krakka í fótboltatreyjum merktum #dóttir.

Staðreyndir

  • Íslenska landsliðið hafði farið á þrjú Evrópumót í röð árið 2020.
  • Þriðjungur iðkenda í fótbolta voru stelpur.
  • Íslenskar knattspyrnukonur voru að ná árangri út um allan heim.

Af hverju voru ekki fleiri fleiri krakkar í treyjummerktum knattspyrnukonum og af hverju voru ekki til plaköt af leikmönnum?

Vandamálið var samfélagslegt. Það þurfti sýnileika.

Við viljum:

  • Breyta leiknum fyrir framtíðina.
  • Gera fjölbreyttari fyrirmyndir sýnilegar fyrir alla fótboltakrakka.
  • Sýna fótboltastelpum að það er allt hægt og það eru engin takmörk.
  • Sýna fólki á öllum aldri að það er hægt að vera knattspyrnustjarna þegar þú ert dóttir.

Fótboltaverslun sem breytir leiknum fyrir framtíðina í dag

Heimavöllurinn hefur hannað plaköt með hvatningarorðum, haldið viðburði þar sem krökkum gefst færi á að hitta stjörnurnar og fengið leikmenn til að árita varning samhliða því að gefa út efni sem eykur sýnileika á gæðum knattspyrnukvenna. Einnig heldur Heimavöllurinn úti daglegri umfjöllun um knattspyrnukonur á Instagram.

Þú getur haft áhrif!
Við hvetjum þig til að merkja treyjuna þína #dóttir og taka þátt í að breyta leiknum í samfélaginu.